Skip og bátar:
Við sölu báta og skipa greiðir seljandi 2,0% af söluverði (lágmark 250.000).  Kaupandi greiðir ekkert gjald af kaupum hér innanlands.  


Afla- og krókahlutdeild:
Við sölu afla- og krókahlutdeilda greiðir seljandi 1,5% af heildarsöluverði á kaupsamningi. Kaupandi greiðir enga þóknun af hlutdeildarkaupum en hann greiðir 0,5% af aflamarki og krókaaflamarki ef það fylgir með í kaupunum.

Afla- og krókaaflamark:
Við sölu afla- og krókaaflamarks er 0,5% af söluverði (lágmark kr.10.800) og greiða bæði kaupandi og seljandi þá upphæð. Þegar sala á sér stað í mörgum pörtum er ekki tekið nema einu sinni lámarksgjald ef heildarsala er undir lámarksgjaldi. Annars er gjaldfært 0,5% af heildarupphæð.

Fyrirtæki:
Við sölu á fyrirtæki um rekstur fiskiskips með aflaheimildum 1,5% af söluverði.

Kaupendaþóknun eða umsýslugjald við sölu á fyrirtækjum:

Þegar um er að ræða sölu á fyrirtækjum í rekstri greiðir Kaupandi 0,5% af kaupverði til Aflmarks ehf fyrir þjónustu sem m.a. felur í sér  ýmiskonar ráðgjöf og aðstoð í kringum kauptilboðsgerð, öflunar greiðslumats, gerð verðmats á fasteign kaupanda (ef þannig háttar), þinglýsingarmeðferð kaupsamnings/afsals og allra annara veðskjala sem kaupandi greiðir með við kaupsamning og ábyrgð því samfara að þessi skjöl skili sér á rétta staði, aðstoð við veðflutninga (sé þess þörf) ásamt að annast lögbundna hagsmunagæslu vegna ýmissa mála sem upp kunna að koma í söluferlinu s.s. vegna gallamála, aflýsing og fl.

Virðisaukaskattur bætist við umsýsluþóknun.
Færslugjald Fiskistofu er eingöngu gjaldfært og innheimt af Fiskistofu.

Kaupandi greiðir inn á fjárvörslureikning Aflmarks ehf. 0545-04-250703.  Kt: 570408-0380.
Seljandi fær greitt inn á þann reikning sem hann hefur tilgreint þegar Fiskistofa hefur staðfest flutning aflaheimilda.